Um Leikskólann
Leikskólinn Sunnuhvoll er við Vífilsstaði .
Sunnuhvoll hóf starfsemi fyrir starfsmenn ríkisspítala árið 1972 og fluttist í núverandi húsnæði þann 6. janúar 1978. Garðabær tók yfir reksturinn 1. ágúst árið 1997. Oddný S. Gestsdóttir var leikskólastjóri Sunnuhvols frá árinu 1978 til ársins 2006. Leikskólastjóri í dag er Helga Kristjánsdóttir. Skólinn er tveggja deilda með um samtals 30 börn á aldrinum tveggja til sex ára. Yngri börnin eru á Bangsadeild, þar er rými fyrir 10 börn og eldri börnin eru á Fiðrildadeild, þar eru 20 rými. Leikskólinn er mjög vel staðsettur í fallegu umhverfi og útivistaraðstaða er góð. Nánasta umhverfi er nýtt til útivistar allan ársins hring.
Leikskólastjóri er: Helga Kristjánsdóttir
Aðstoðarleikskólastjóri er: Guðrún Brynjólfsdóttir
Netfang skólans er: sunnuhvoll@leikskólarnir.is