Við blöndum námssviðunum jafnt og og þétt yfir veturinn. Við það skapast meiri sveiganleiki í hópavinnu.

Námssviðin eru :

Hreyfing og hollusta

Við leggjum mikla áherslu á að börnin borði hollan og næringaríkan mat. Við ræðum mikið um hollustu og hversu nauðsynlegt það sé að borða hollan og góðan mat, að matartímar séu rólegir og séu ánægjuleg samverustund.  Börnin taka þátt í undirbúningi og frágangi máltíða.

Börn hafa ríka þörf fyrir að hreyfa sig frjálst og óhindrað. Í leikskóla ber því að leggja áherslu á hreyfingu barna og hreyfiuppeldi. Öll hreyfing stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan. Leikir sem reyna á líkamann og  veita barni útrás

Markmið:

  • Að stuðla að eflingu líkamsþroska
  • Að auka þrek og heilbrigði
  • Að börnin öðlist góða sjálfsmynd
  • Að börnin öðlist líkamlega og andlega vellíðan
  • Að börnin læri að þekkja og skynja líkama sinn

Á Sunnuhvoli leggjum við mikla áherslu á holla næringu og hreyfingu. Við förum í íþróttahús einu sinni í viku og erum duglegar að fara í göngutúra hér um nágrennið.  Sú nýbreytni sem er núna er sú að við fengum til liðs við okkur leikskólastjóra í Reynisholti sem hefur unnið mikið börnum og jóga. Hún hitti starfsfólk leikskólans á starfsdegi og hefur einnig miðlað til okkur upplýsingum í vetur. Hún ætlar að hitta okkur í Ásgarði og kenna börnunum snertingu jóga og slökun.

Jóga er alhliða lífsspeki sem stuðlar að samtengingu líkama og hugar.  Jógaástundun með börnunum miðar að því að öðlast og viðhalda líkamlegu og andlegu heilbrigði og með þessu er átt við:

  • Að viðhalda t.d.  meðfæddum liðleika og jafnvægisskynjun barna.
  • Að byggja upp styrk
  • Að auka sveiganleika, jafnvægi og einbeitningu
  • Að stuðla að spennulosun og innri ró.

Málrækt

Tungumálið er mikilvægasta tæki mannsins til boðskipta.  Í bernsku er lagður grundvöllur að málþroska barna  Í leikskóla ber að skapa umhverfi sem hvetur börn til samræðna.  Málörvun er fléttað inn í alla þætti leikskólastarfsins.  Við lesum á hverju degi og ræðum um það sem við erum að lesa.  Í morgunstund eru þau hvött til að segja frá, við förum með rím og kvæði og stundum í tunguleikfimi.  Við höfum ritmálsörvandi umhverfi þar sem hlutir eru merktir og hólf barnanna eru merkt nafni þeirra.  Í sögustund í hádeginu lesum við eða hlustum á sögur af geisladiskum og leikrit. 

Myndsköpun

Börn á leikskólaaldri hafa ríka þörf fyrir að tjá sig með myndmáli á skapandi hátt. Börnin eiga að fá að teikna, mála og móta frjálst eftir eigin hugmyndum á sinn sérstæða hátt. Frjáls og skapandi myndgerð barna á þessu þroskaskeiði, eins og teikningar, auðkennast fyrst af þroskastigi þeirra.  Börnin hafa aðgang af fjölbreyttum efnivið til myndsköpunar. 

Tónlist

Leggja ber áherslu á að öll börn í leikskóla fái ríkuleg tækifæri til að njóta tónlistar og iðka hana. Daglega er sungið með börnunum í samverustundum. Við höfum einnig verið dugleg að hlusta á geisladiska og börnin eru hvött til að koma með þá að heiman. Verk eins og Pétur og úlfurinn eru alltaf mjög vinsæl 

Náttúra, menning og samfélag


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi