Hagnýtar upplýsingar

Opnunartími Leikskólinn opnar kl. 7:30 að morgni og lokar kl.17. Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að virða umsaminn vistunartíma.

Foreldrasamvinna: Við leggjum okkur fram um að eiga góð dagleg samskipti við foreldra þegar komið er með barn í leikskólann og það sótt í lok dags. Barn dvelur stóran hluta dags í leikskólanum og því nauðsynlegt fyrir starfsmenn að fá upplýsingar um líðan þess og venjur heima fyrir. Ekki er síður mikilvægt fyrir foreldra að fá að vita hvernig leikskóladagur barnsins gekk. Oft veldur lítið atvik því, hvort heldur sem er í leikskólanum eða heima fyrir, að hegðun eða líðan barns er ekki eins og vant er. Geta þá upplýsingar á milli foreldra og starfsmanna auðveldað úrlausn mála. Foreldrar geta alltaf hringt í leikskólann til þess að spyrjast fyrir um líðan barns síns og eins hringja starfsmenn leikskólans í foreldra ef eitthvað kemur upp á.

Það er afar mikilvægt að láta starfsmenn vita þegar komið er með barn í leikskólann og það sótt. Einnig er nauðsynlegt að barn og starfsmenn viti hver sækir barnið ef það er einhver annar en foreldrar þess.


Uppsagnafrestur: Uppsagnarfrestur á leikskóladvöl er einn mánuður og miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar. Tilkynna skal leikskólastjóra uppsögnina.

Foreldrafundir: Foreldrafundir eru haldnir í október ár hvert. Tilgangur þeirra er að miðla upplýsingum til foreldra um leikskólann og að efla foreldrasamstarf.

Foreldraviðtöl: Foreldraviðtöl fara fram á tímabilinu janúar - febrúar ár hvert. Tilgangur þeirra er að miðla upplýsingum til foreldrum um barnið, þroska þess, félagslega stöðu og líðan í leikskólanum. Einnig að fá upplýsingar um barnið heima fyrir.

Upplýsingatöflur: Upplýsingatöflur eru í fataherbergjum á báðum deildum og eru foreldrar vinsamlegast beðnir um að fylgjast með því sem þar er að sjá.

Fréttabréf: Fréttabréf er gefið út að jafnaði tvisvar til þrisvar sinnum á ári. Fréttabréfið inniheldur upplýsingar um starfsemi leikskólans.

Afmæli barna í leikskólanum: Við viljum benda á að ekki er leyfilegt að bjóða upp á sælgæti í afmælum á leikskólanum. Það sama á við ef barnið kveður með veislu þegar það hættir í leikskólanum. Sjá nánar í hefðir og hátíðir.

Óhöpp - slys - veikindi: Börn í leikskólum Garðabæjar eru slysatryggð á meðan þau dvelja í leikskólanum. Ef barn verður fyrir slysi höfum við samband við foreldra. Náist ekki í foreldrana eða ef um alvarlegt slys er að ræða er farið beint með barnið á slysadeild eða heilsugæslu. Veikt barn skal ekki koma í leikskólann. Foreldrar eru beðnir að tilkynna veikindi barna sinna. Ekki er gert ráð fyrir að börn séu höfð inni lengur en þrjá daga eftir veikindi.

Lyfjagajafir: Takmarka skal sem kostur er allar lyfjajafir í leikskólanum. Lyf eru ekki gefin í leikskólanum nema í undantekningartilfellum. Ef barn er haldið langvarandi sjúkdóm ( t.d. astma eða flogaveiki) og þarf að fá lyf áður en það er sótt í leikskólann getur leikskólakennari gefið lyfið. Lyfjagjöf er á ábyrgð foreldra. Ef gefa á barni lyf, þarf foreldri að fylla út þar til gert eyðublað og undirrita. Koma skal með lyfið í dagskömmtum, hvern dag fyrir sig. Setja þarf lyfið í þar til gert box og merkja það barninu.

Fjarvistir: Vinsamlegast tilkynnið fjarvistir barna ykkar. Síminn á Sunnuhvoli er 565-9480.

Fatnaður: Mikilvægt er að klæðnaður barnanna sé þægilegur. Nauðsynlegt er að merkja allan fatnað barnanna og ekki síst skófatnað. Börnin þurfa ætíð að hafa meðferðis aukafatnað og hlý útiföt.
Einnig snjó-, vind- og regngalla eftir því sem við á. Vinsamlegast skiljið ekki eftir óhreina og blauta vettlinga í hólfum barnanna eða á ofnum í fataherbergi. Takið óhreina vettlinga með ykkur heim daglega. Tæma þarf hólf barnanna á föstudögum.

Leikföng: Leikskólinn tekur ekki ábyrgð á einkaleikföngum barnanna.

Breytt heimilisfang - breyting á högum: Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef breyting verður á búsetu eða á símanúmerum.

Breyting á dvalartíma: Óski foreldrar eftir breytingu á dvalartíma fyrir barn sitt, skal þeim óskum komið til leikskólastjóra á þar til gerðu eyðublaði. Óskir um breytingar þurfa að berast fyrir fyrsta eða fimmtánda hvers mánaðar.

Viðtalstímar: Foreldrum er velkomið að fá viðtal við leikskólakennara þegar þeir óska. Viðtalstíma leikskólakennara má finna hér.

Skipulagsdagar og námskeiðsdagur: Skipulagsdagar starfsfólks leikskólanna í Garðabæ eru tveir á ári. Starfsfólk notar skipulagsdagana til að endurmeta og undirbúa starf sitt fyrir veturinn. Þeir nýtast einnig í námskeið og fyrirlestra. Fyrri skipulagsdagurinn er í janúar og er þá leikskólinn lokaður. Seinni skipulagsdagurinn er að hausti en er haldinn á laugardegi. Auki þessarra tveggja Skipulagsdaga er haldinn einn námskeiðsdagur að hausti og þá er leikskólinn lokaður. 

Sumarfrí:

Leikskólar Garðabæjar loka ekki yfir sumartímann. Foreldrum taka fjögurra vikna sumarfrí fyrir börnin sín. Skila þarf þar til gerðu eyðublaði fyrir 15. mars.

Vinsamleg tilmæli til foreldra varðandi ökutæki: 

Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að slökkva á ökutækjum sínum þegar farið er inn með börnin á leikskólann. Munum að aka á 30 km hraða í íbúðarhverfum og í grennd við skóla.

Munið að garðhliðið á alltaf að vera lokað, öryggi barna ykkar er í húfi.







Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi